Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 25. janúar 2015 19:00
Alexander Freyr Tamimi
Wenger: Týpískur bikarleikur
Wenger var sáttur.
Wenger var sáttur.
Mynd: Getty Images
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, var eðlilega ánægður eftir að hans menn komust áfram í enska bikarnum í dag.

Arsenal vann 3-2 útisigur gegn Brighton í hörkuleik og viðurkennir Wenger að sigurinn hafi ekki verið auðfenginn.

,,Þetta var erfiðisvinna. Týpískur bikarleikur þar sem hitt liðið gefst aldrei upp," sagði Wenger.

,,Við urðum að berjast allt til enda, en í heildina vorum við alltaf yfir og klúðruðum auk þess nokkrum færum."

,,Við unnum leikinn með góðri byrjun. Úrslitin frá því í gær (töp Chelsea og Man City) komu í veg fyrir vanmat og við byrjuðum af krafti. Ég held að það hafi komið Brighton á óvart."

,,Það er of snemmt að segja hvort við getum unnið bikarinn. Það er enn svo mikið eftir."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner