Gestir vikunnar í sjónvarpsþætti Fótbolta.net. Fanndís Friðriksdóttir, Hildur Einarsdóttir og Kjartan Atli Kjartansson.
Fótboltamenn á Twitter voru til umræðu í sjónvarpsþætti vikunnar. Þar var meðal annars skoðaður munurinn á erlendum og íslenskum leikmönnum á Twitter.
„Atvinnumennirnir okkar eru minna produceraðir en þeirra erlendu starfsbræður. Við erum með landsliðsfyrirliða sem er virkur og skemmtilegur á Twitter. Við erum með marga karaktera sem fá að vera þeir sjálfir. Leikmenn í deildinni hérna heima eru margir léttir og skemmtilegir," sagði Kjartan Atli Kjartansson.
„Íslensku eru aðeins persónulegri. Sérstaklega gæarnir í Pepsi-deildinni. Það eru allt vinir, frændur og kunningjar. Mér finnst samt íslensku leikmennirnir stundum vanmeta samfélagsmiðlana," sagði Hildur Einarsdóttir.
„Þegar EM var síðasta sumar henti Hólmbert í Twitter færslu þegar voru 1-2 dagar í mikilvægan leik hjá KR. Hann var ekki beint að fókusera á hann. Bjarni (Guðjónsson) var brjálaður og Hólmbert var settur aðeins út í kuldann. Það eina sem Hólmbert var að hugsa var að fylgja landsliðinu. Ég held að Íslendingar láti frekar nappa sig við eitthvað svona," sagði Hildur.
Aron tekur þátt í öllum umræðum
Margir leikir í Pepsi-deildinni eru virkir á Twitter. „Það er einkahúmor hjá mönnum. Menn eru stundum vinir þvert á lið og eru að skjóta á hvern annan. Það er gaman að sjá það hjá íslenskum leikmönnum. Síðan er ótrúlegt hvað margir landsliðsmenn eru skemmtilegir miðað við stærð landsliðsins," sagði Kjartan en Aron Einar Gunnarsson fékk sérstakt hrós frá gestum þáttarins fyrir að vera öflugur á Twitter.
„Hann tekur þátt í öllum umræðum. Ef það er eitthvað í gangi þá er hann búinn að segja eitthvað. Hann er allra á Twitter," sagði Fanndís Friðriksdóttir um Aron.
Í brotinu hér að ofan má einnig sjá umræðu um Instagram og af hverju Gylfi Þór Sigurðsson er ekki með fleiri fylgjendur þrátt fyrir frábæra spilamennsku á Englandi.
Gestir vikunnar í sjónvarpsþættinum
Fanndís Friðriksdóttir - @fanndis90
Hildur Einarsdóttir - @HildurEinarsd
Kjartan Atli Kjartansson- @Kjartansson4
Hér að ofan má sjá umræðuna í heild sinni.
Sjá einnig:
Sjónvarpið: Á Rooney að fara til Kína?
Sjónvarpið: Samfélagsmiðlar hafa breytt fögnum leikmanna
Sjónvarpið: Hvaða fótboltamenn eru bestir á samfélagsmiðlum?
Sjónvarpið: Myndi aldrei sjá um Snapchat á leikdegi
Athugasemdir