lau 25. febrúar 2017 19:00
Elvar Geir Magnússon
Upptaka - Hlustaðu á útvarpsþátt dagsins í heild
Mynd: Fótbolti.net
Komin er inn upptaka af útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag.

Upptökur af öllum þáttum koma á Vísi

Víða var komið við í þættinum í dag. Gestur var markagoðsögnin Tryggvi Guðmundsson en Elvar Geir Magnússon, Magnús Már Einarsson og Benedikt Bóas Hinriksson voru einnig í hljóðverinu.

Farið var yfir stöðu mála hjá liðum Pepsi-deildarinnar nú þegar undirbúningstímabilið er komið á fulla ferð.

Rætt var um enska boltann þar sem brottrekstur Claudio Ranieri bar á góma. Svo var að sjálfsögðu hitað upp fyrir úrslitaleik enska deildabikarins þar sem Manchester United og Southampton leika á morgun, sunnudag. Runólfur Trausti Þórhallsson á raududjoflarnir.is var á línunni.

Þá var púlsinn tekinn á stöðu mála hjá Víkingi Ólafsvík og rætt við Jónas Gest Jónasson formann Ólsara.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner