Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 25. febrúar 2018 13:07
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Man Utd og Chelsea: Mourinho byrjar með Pogba
Pogba kemur aftur inn í byrjunarlið Man Utd.
Pogba kemur aftur inn í byrjunarlið Man Utd.
Mynd: Getty Images
Manchester United og Chelsea eigast við í stórleik í ensku úrvalsdeildinni á þessum fallega sunnudegi. Leikurinn hefst 14:05 og fer hann fram á Old Trafford í Manchester.

Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir bæði lið þar sem Meistaradeildarbaráttan er mjög hörð.

Umræðan um Paul Pogba hefur náð miklum hæðum síðustu daga. Í slúðurpakka dagsins var sagt að Pogba væri tilbúinn að yfirgefa United ef Jose Mourinho yrði áfram stjóri félagsins.

Mourinho velur þó Pogba í byrjunarlið sitt í dag. Með Pogba á miðjunni eru Scott McTominay og Nemanja Matic.

Anthony Martial snýr aftur í byrjunarlið United, hann byrjar með Lukaku og Alexis Sanchez. Þá byrjar Victor Lindelöf í hjarta varnarinnar ásamt Chris Smalling.

Hjá Chelsea er Alvaro Morata mættur aftur í byrjunarliðið. Willian heldur sæti sínu eftir frábæran leik í miðri viku gegn Barcelona og Danny Drinkwater kemur inn á miðjuna.

Gunnlaugur Jónsson spáði leiki helgarinnar í enska boltanum fyrir Fótbolta.net en um þennan leik sagði hann:

„Mikilvægur leikur í baráttunni um silfrið, Conte og félagar geta með sigri jafnað Man Utd en þetta verður taktísk skák sem endar með jafntefli. Djöfull er Leikhús draumanna þungt og leiðinlegt um þessar mundir." Spá Gulla: 1-1.

Hér að neðan eru byrjunarliðin:





Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner
banner
banner