Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. febrúar 2018 16:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lukaku: Umræðan hefur engin áhrif á mig
Lukaku sýndi góða takta í dag.
Lukaku sýndi góða takta í dag.
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku skoraði og átti fallega stoðsendingu þegar Manchester United lagði Englandsmeistara Chelsea að velli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Við þurftum að leggja mikið á okkur fyrir þennan sigur, við vorum vel undirbúnir og gerðum okkar besta í dag," sagði Lukaku glaður í bragði eftir leikinn.

Lukaku hefur verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína að undanförnu, ekki síst eftir leikinn gegn Sevilla í Meistaradeildinni á miðvikudag. Hann segir að það hafi ekki áhrif á sig.

„Umræðan hefur ekki áhrif á mig. Ég reyni alltaf að gera mitt besta, þessi þrjú stig eru frábær fyrir okkur."

Þess má geta að þetta var fyrsta mark Lukaku gegn topp sex liði (Man City, Liverpool, Arsenal, Chelsea og Tottenham) fyrir Manchester United.



Athugasemdir
banner
banner