Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. febrúar 2018 17:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Matic fékk miða og Willian varð forvitinn
Mynd: Getty Images
Manchester United hafði betur gegn Chelsea í mikilvægum leik í ensku úrvalsdeildinni í dag. United endurheimti annað sæti deildarinnar með sigrinum en Chelsea situr áfram í fimmta sæti.

Það vakti athygli seint í leiknum, stuttu eftir að United hafði komist yfir, þegar Jose Mourinho, stjóri United, sendi varnarmanninn Eric Bailly inn á völlinn með miða.

Á miðanum var einhver skipun en hann endaði hjá miðjumanninum Nemanja Matic.

Þegar Matic ætlaði að líta á miðann var Willian, markaskorari Chelsea, eitthvað forvitinn og ætlaði að gægjast og sjá hvað í ósköpunum stæði á miðanum.

Honum tókst ekki alveg ætlunarverk sitt en útkoman var frekar fyndin. Smelltu hér til að sjá myndband af þessu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner