Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði Íslands, lenti eldsnemma í morgun í Kasakstan en framundan er leikur gegn heimamönnum í undankeppni EM.
„Ég mætti í morgun og það er aðeins verið að reyna að ná svefni til baka og aðeins að venjast tímanum. Ég stefni á að vera orðinn flottur og klár á morgun," sagði Aron við Fótbolta.net á hótelinu í Astana í morgun. Fyrirliðinn segist skynja góða stemningu í hópnum.
„Það er virkilega góð stemning miðað við tap í síðasta leik. Við höfum virkilega trú á þessu verkefni og þessi leikur er virkilega mikilvægur upp á framhaldið að gera. Menn verða að vera á tánum til að vinna Kasakstan, þeir gefa okkur ekki neitt."
„Það er æðislegt að fá Eið. Hann tekur gríðarlega mikla athygli í burtu frá okkur strákunum og að hafa hann í toppformi í landsliðinu er frábært. Hann hefur spilað vel með Bolton á tímabilinu og virðist í fantaformi."
Viðtalið við Aron má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir