Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. mars 2015 22:44
Alexander Freyr Tamimi
Kristján Flóki biðst afsökunar í yfirlýsingu
Kristján Flóki var búinn að samþykkja að ganga í raðir Blika.
Kristján Flóki var búinn að samþykkja að ganga í raðir Blika.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Borghildur Sigurðardóttir (t.v.) kvittaði undir yfirlýsinguna.
Borghildur Sigurðardóttir (t.v.) kvittaði undir yfirlýsinguna.
Mynd: Breiðablik
Kristján Flóki Finnbogason hefur beðið forsvarsmenn, starfsfólk og stuðningsmenn Breiðabliks á því hvernig félagaskipti hans frá FC Kaupmannahöfn þróuðust.

Breiðablik birti í síðustu viku fréttir um að þessi ungi framherji væri genginn í raðir félagsins, en nú á síðustu dögum tók málið óvænta átt. Endaði Kristján Flóki á að snúa aftur til uppeldisfélagsins FH.

Rétt í þessu birtist yfirlýsing frá Breiðabliki sem er undirrituð af Kristjáni Flóka, umboðsmanninum Magnúsi Arnari Magnússyni og Borghildi Sigurðardóttur, formanni knattspyrnudeildar Breiðabliks.

Í yfirlýsingunni kemur fram að málinu sé nú lokið af allra hálfu, en þar segir að Kristján Flóki hafi samþykkt munnlega að ganga í raðir Breiðabliks og að þau félagaskipti hafi verið staðfest í tölvupósti. Samþykktu allir hlutaðeigandi að tilkynna skiptin.

Kristján Flóki endaði þó á að skipta um skoðun og ganga í raðir FH, en yfirlýsinguna má sjá hér að neðan.

Vegna fréttaflutnings um félagaskipti Kristjáns Flóka Finnbogasonar er rétt að eftirfarandi komi fram:

Þann 16. mars 2015 gengu Breiðablik og FC Köbenhavn frá samningi um félagskipti Kristjáns Flóka í gegnum umboðsskrifstofu leikmannsins.

Samdægurs samþykkti Kristján Flóki samninginn munnlega og var það staðfest í tölvupóstsamskiptum og á fundi milli félagsins og umboðsskrifstofu hans að hann myndi ganga í raðir Breiðabliks. Þegar það lá fyrir samþykktu allir hlutaðeigandi að standa sameiginlega að fréttatilkynningu þar sem tilkynnt yrði um félagskipti Kristjáns Flóka í Breiðablik í fjölmiðlum.

Ákveðið var að undirrita skriflegan samning síðar þann sama dag, en leikmaðurinn var þá staddur í Danmörku. Úr því varð þó ekki þar sem Kristjáni Flóka snérist hugur og ákvað hann í framhaldinu að gerast leikmaður FH.

Kristjáni Flóka þykir leitt að hafa skipt um skoðun og biður forsvarsmenn, starfsfólk og stuðningsmenn Breiðabliks innilega afsökunar á þessum málalokum og óskar þeim góðs gengis á knattspyrnuvellinum í sumar.

Með yfirlýsingu þessari telst máli þessu lokið og munu málsaðilar ekki tjá sig frekar um það við fjölmiðla.

Virðingarfyllst,
Borghildur Sigurðardóttir, formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks
Magnús Agnar Magnússon, meðeigandi Totalfootball
Kristján Flóki Finnbogason

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner