Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. mars 2015 23:15
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Lord Bendtner setti þrennu
Mynd: Getty Images
Nicklas Bendtner, einnig þekktur sem Lord Bendtner, gerði þrennu í vináttulandsleik gegn Aroni Jóhannssyni og félögum í bandaríska landsliðinu fyrr í kvöld.

Það þótti nokkuð merkilegt að sjá Bendtner gera þrennu, enda hefur hann aðeins skorað eitt mark í ellefu leikjum frá því að hann fór úr Arsenal til Wolfsburg.

Jozy Altidore byrjaði í framlínu Bandaríkjanna ásamt Aroni Jóhannssyni, en þeir gerðu frábæra hluti sem liðsfélagar hjá AZ Alkmaar á sínum tíma.

Altidore skoraði fyrsta mark leiksins og lagði mark Arons upp og það þykir merkilegt að bæði Altidore og Bendnter hafi skorað í leiknum, enda er Altidore þekktur fyrir að hafa aðeins skorað eitt mark í 42 deildarleikjum fyrir Sunderland.


Athugasemdir
banner
banner
banner