Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 25. mars 2015 18:30
Magnús Már Einarsson
Sami Khedira: Verður erfitt að fara
Later!
Later!
Mynd: Getty Images
Sami Khedira hefur nánast staðfest að hann muni yfirgefa herbúðir Real Madrid í sumar.

Hinn 27 ára gamli Khedira verður samningslaus í sumar en hann hafnaði nýjum samningi við Real í fyrra.

,,Ég elska Real Madrid og það verður erfitt að fara frá félaginu," sagði Khedira í viðtali við Marca.

Þessi ummæli Þjóðverjans benda til þess að hann sé á förum en Arsenal, Schalke, FC Bayern og fleiri félög fylgjast spennt með gangi mála.

Sjálfur hefur Khedira verið mikið meiddur í vetur en hann hefur einungis komið við sögu í ellefu leikjum í spænsku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner