lau 25. mars 2017 21:31
Dagur Lárusson
Agger: Ég sakna þess að vera hér
Agger og Skrtel voru góðir saman.
Agger og Skrtel voru góðir saman.
Mynd: Getty Images
Daniel Agger, fyrrum leikmaður Liverpool, segir að hann sé Liverpool maður inn við beinið. Agger snéri aftur á Anfield um helgina í.

„Ég er alltaf ánægður að koma hingað aftur,” sagði Agger í viðtali við Goal.

„Þetta er ákveðin upplifun sem er erfitt að útskýra. Það er erfitt fyrir mig að útskýra hvað það þýðir fyrir mig að vera hérna, það er erfitt að koma því í orð.”

„Fljótlega leið mér eins og ég ætti heima hérna, og því lengur sem þú ert á stað sem að hentar þér, því meira verður sá staður hluti af þér.”

„Ég sakna þess að vera hérna. Ég er alveg viss um það ef að þú spyrðir fleiri fyrrverandi leikmenn Liverpool, þá myndu þeir segja það sama. Stundum þegar þú átt eitthvað gott þá er besta að halda sem fastast í það.”

Þessi frækni Dani lagði upp skóna á hilluna í júní á síðasta ára aðeins 32 ára að aldri.
Athugasemdir
banner
banner