Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   lau 25. mars 2017 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Mourinho útskýrir ferð sína til Króatíu
Mourinho eyðir frítíma sínum í Króatíu.
Mourinho eyðir frítíma sínum í Króatíu.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho stjóri Manchester United var staddur í Króatíu í gærkvöldi, þar fylgdist hann með leik Króatíu og Úkraínu.

Strax fóru á stað sögusagnir um að hann væri mögulega staddur þar til að fylgjast með Ivan Rakitic leikmanni Barcelona eða Ivan Perisic leikmanni Inter.

Mourinho hafnaði hins vegar þeim orðrómi og sagði „Ég hef ekkert að fela, ég kom bara hingað til að njóta frídaga minna og heimsækja vini t.d Predrag Mijatovic og Davor Suker".

„Ég veit að allir halda að ég sé hér til að fylgjast með leikmönnum, en í fótbolta í dag þarft þú ekki að ferðast til að skoða leikmenn, ég þekki þá alla vel".

„Ég kom hingað sem maður sem vil slaka á og njóta góða veðursins, þetta er ólíkt rigningar veðrinu í Manchester," sagði Mourinho að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner