Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. apríl 2015 14:00
Magnús Már Einarsson
Heimild: Mosfellingur 
Arnór Gauti aftur til Brighton
Mynd: Raggi Óla
Arnór Gauti Ragnarsson, leikmaður Breiðaliks, er á leið í annað sinn til enska félagins Brighton á reynslu.

Þetta kemur fram í bæjarblaðinu Mosfellingi.

Arnór Gauti sem er 18. ára gamall er uppalinn hjá Aftureldingu en samdi í fyrra við Breiðablik.

Hann fór í haust á reynslu hjá Reanding og Brighton sem bæði spila í Championship deildinni á Englandi.

Arnór Gauti spilaði æfingaleik með U18 ára liði Brighton í 4-1 sigri á Brentford og gerði sér lítið fyrir og skoraði öll fjögur mörk liðsins í leiknum.

Hann fer aftur út á morgun og dvelur hjá Brighton í viku en hann kemur til með að æfa bæði með U18 og U21 árs liði félagsins.
Athugasemdir
banner
banner
banner