Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. apríl 2015 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Bielsa: Krísa hjá Marseille
Mynd: Getty Images
Marcelo Bielsa, þjálfari Marseille í Frakklandi, viðurkennir það að það krísa sé hjá félaginu um þessar mundir.

Marseille tapaði 5-3 fyrir Lorient í gær en liðið lenti 2-0 undir og náði að jafna áður en Lorient tók völdin.

Liðið hefur nú tapað síðustu fjórum leikjum liðsins í frönsku deildinni og er nú átta stigum á eftir toppliðum Lyon og PSG.

„Það er krísa í gangi hjá Marseille. Þetta er mikilvægasti kafli tímabilsins og rétta leiðin er að reyna að forðast mistök," sagði Bielsa.
Athugasemdir
banner
banner
banner