Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 25. apríl 2015 20:42
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Icardi hetja Inter gegn Roma
Icardi í baráttu við Yanga-Mbiwa í kvöld
Icardi í baráttu við Yanga-Mbiwa í kvöld
Mynd: Getty Images
Tveir leikir fóru fram í ítalska boltanum í dag en nú rétt í þessu var að ljúka stórleik Inter og Roma.

Í fyrri leik dagsins unnu Udinese sannfærandi sigur á AC Milan þar sem þeir Giampiero Pinzi og Emmanuel Agyemang-Badu komu Udinese í 2-0 áður en Giampaolo Pazzini klóraði í bakkann fyrir AC Milan.

Hernanes kom Inter í forystu eftir fimmtán mínútna leik á San Siro í kvöld en belgíski harðjaxlinn Radja Nainggolan jafnaði metin í síðari hálfleik. Mauro Icardi reyndist svo hetja heimamanna en hann gerði sigurmarkið nokkrum mínútum fyrir leikslok.

Udinese 2 - 1 Milan
1-0 Giampiero Pinzi ('58 )
2-0 Emmanuel Agyemang-Badu ('74 )
2-1 Giampaolo Pazzini ('88 )


Inter 2 - 1 Roma
1-0 Hernanes ('15 )
1-1 Radja Nainggolan ('63 )
2-1 Mauro Icardi (´88)
Athugasemdir
banner
banner
banner