Edinson Cavani var á skotskónum í dag þegar PSG niðurlægði Lille í frönsku úrvalsdeildinni.
Leiknum lauk með 6-1 sigri Parísarliðsins þrátt fyrir að það væri án sinnar skærustu stjörnu, Zlatan Ibrahimovic en hann tekur út leikbann.
Þá stigu einfaldlega aðrir sóknarmenn upp en Ezequiel Lavezzi og Cavani skoruðu tvö mörk hver.
Fyrra mark Cavani var einkar laglegt en hann lét Vincent Enyeama líta illa út í marki Lille.
Markið má sjá hér fyrir neðan.
Athugasemdir