Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   lau 25. apríl 2015 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Tevez: Fjölmiðlar tala of mikið
Mynd: Getty Images
Carlos Tevez, leikmaður Juventus á Ítalíu, segir ekkert til í því að hann sé á leið til Boca Juniors í heimalandinu.

Tevez, sem er 31 árs gamall, hefur verið í lykilhlutverki hjá Juventus á þessari leiktíð en liðið er að tryggja sér ítalska titilinn auk þess sem liðið er komið í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu.

Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Tevez en hann gaf sterklega til kynna á dögunum að hann væri á leið til Boca Juniors, þar sem hann hóf ferilinn.

„Það er ekkert í gangi með Boca. Fjölmiðlar skrifa of mikið bull. Ég vil njóta þess að vera hjá Juventus og vil einbeita mér að okkar verkefnum," sagði Tevez.
Athugasemdir
banner
banner
banner