Antonio Conte knattspyrnustjóri Chelsea er ástríðufullur á hliðarlínunni og það mátti greinilega sjá í leik kvöldsins þegar liðið vann 4-2 sigur á Southampton og komst í sjö stiga forskot á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.
Conte sást þá sparka í poka sem var fullur af dóti á hliðarlínunni og fréttamenn spurðu hann svo út í þetta eftir leik.
„Á þessari stundu langaði mig til að sparka í boltann," útskýrði Conte fyrir fréttamönnunum.
„Ég tók pokann því eins og boltann. Stundum langar mig bara til að spila en dómarinn myndi reka mig af velli."
Athugasemdir