Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. apríl 2018 11:24
Elvar Geir Magnússon
Alaba ekki með í kvöld
Alaba ekki með í kvöld.
Alaba ekki með í kvöld.
Mynd: Getty Images
David Alaba, varnarleikmaður Bayern München, mun missa af fyrri leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Sky í Þýskalandi segir að austurríski landsliðsmaðurinn sé meiddur á fæti og geti ekki tekið þátt í leiknum.

Markvörðurinn Manuel Neuer, miðjumaðurinn Arturo Vidal og vængmaðurinn Kingsley Coman eru einnig fjarri góðu gamni.

Leikurinn í kvöld verður á Allianz Arena í München og seinni leikurinn á þriðjudaginn í næstu viku.

Hinn fjölhæfi Alaba hefur verið á einstaklingsæfingum í vikunni vegna meiðsla sinna. Rafinha mun væntanlega byrja í leiknum í kvöld en hann hefst 18:45 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner