Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. apríl 2018 17:25
Magnús Már Einarsson
Glæsileg verðlaun í Draumaliðsdeildinni
Pepsi-deildin hefst á föstudagskvöldið!
Pepsi-deildin hefst á föstudagskvöldið!
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Pepsi-deild karla hefst á föstudagskvöldið og skráning er opin í Draumaliðsleik Fótbolta.net og Eyjabita sem rekin er í samstarfi við Íslenskan toppfótbolta eins og síðustu ár.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Stórglæsileg verðlaun
Eyjabiti er aðalstyrktaraðili leiksins í ár. Eyjabiti er harðfiskvinnsla sem er staðsett á Grenivík.

Þjálfari stigahæsta liðsins í Draumaliðsdeildinni í lok móts fær ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Gaman ferðum sem og harðfisk frá Eyjabita.

Eyjabiti gefur reglulega harðfisk fyrir stigahæstu umferðirnar í sumar auk þess sem að þjálfari draumaliðsins sem er á toppnum eftir 11 umferðir fær tvær fríar gistinætur á Grýtubakka við Grenivík fyrir 6-8 manns. Sjá nánar hér.

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Fyrsta umferðin í Pepsi-deildinni hefst á föstudagskvöld en þann dag lokar markaðurinn klukkan 19:00. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner