Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. apríl 2018 21:18
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enginn vinnur meira en Ronaldo og Real Madrid
Enginn hefur unnið fleiri leiki en Ronaldo.
Enginn hefur unnið fleiri leiki en Ronaldo.
Mynd: Getty Images
Real Madrid sigraði Bayern München í fyrri leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Leikurinn var í Bæjarlandi og er Real í kjörstöðu fyrir seinni leikinn í næstu viku.

Með sigrinum í kvöld náði Madrídarstórveldið þeim áfanga að vinna sinn 150. Meistaradeildarleik.

Real er fyrsta liðið í sögu keppninnar sem nær þessum áfanga en liðið er það sigursælasta í sögu Meistaradeildarinnar, hefur unnið hana 12 sinnum og núna tvisvar í röð.

Risastór þáttur í velgengni Real Madrid í keppninni síðustu tvö árin er Cristiano Ronaldo, einn besti fótboltamaður allra tíma.

Ronaldo er markahæsti leikmaður í sögu Meistaradeildarinnar en hann er núna líka orðinn sá leikmaður sem hefur unnið flesta leiki í keppninni, 96 talsins. Fyrrum liðsfélagi Ronaldo, markvörðurinn Iker Casillas, átti metið sem Ronaldo hefur núna bætt.

Mjög gott kvöld fyrir Madrídinga.





Athugasemdir
banner
banner
banner