Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 25. apríl 2018 07:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gummi Tóta gefur út sumarsmell
Gummi er afar fær tónlistarmaður.
Gummi er afar fær tónlistarmaður.
Mynd: Getty Images
Guðmundur Þórarinsson, leikmaður Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni hefur gefið út fjörugt lag fyrir sumarið. Lagið heitir "Leigubílstjóri".

Guðmundur er atvinnumaður í fótbolta en hann er einnig afar fær tónlistarmaður.

Hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í febrúar og var með tvö lög í undankeppninni. Hvorugt lagið komst áfram en hann söng sjálfur lagið "Litir".

Sjá einnig:
Markaskorari gegn Man City fylgdist með Eurovision á Íslandi

Nú hefur Gummi gefið út lagið sem kemur manni svo sannarlega í stuð fyrir sumarið sem er í vændum.

Hlusta má á lagið hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner