Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. apríl 2018 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin í dag - Risarnir mætast
Þýsku meistararnir eru á heimavelli í kvöld.
Þýsku meistararnir eru á heimavelli í kvöld.
Mynd: Getty Images
Leikur kvöldsins:
18:45 Bayern - Real Madrid (Stöð 2 Sport)

Undanúrslit Meistaradeildarinnar hófust í gær með fyrri leik Liverpool og Roma. Í kvöld mætast risarnir Bayern München og Real Madrid í fyrri leik sínum.

Bayern komst í gegnum Sevilla í 8-liða úrslitunum á meðan Real fór áfram gegn Juventus eftir mikla dramatík.

Real hefur unnið keppnina síðustu tvö árin en Bayern ætlar að reyna að koma í veg fyrir að Madrídarstórveldið fari með sigur af hólmi þriðja árið í röð.

Leikurinn í kvöld hefst 18:45 og er að sjálfsögðu sýndur beint á Stöð 2 Sport. Einnig verður hægt að fylgjast með stöðunni á úrslitaþjónustu á forsíðu Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner