Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 25. apríl 2018 17:04
Magnús Már Einarsson
Oxlade-Chamberlain frá út tímabilið - Ekki með á HM
Alex Oxlade-Chamberlain.
Alex Oxlade-Chamberlain.
Mynd: Getty Images
Liverpool hefur staðfest að Alex Oxlade-Chamberlain verði frá keppni út tímabilið vegna meiðsla á hné.

Oxlade-Chamberlain verður frá keppni í nokkra mánuði og ljóst er að hann verður heldur ekki með enska landsliðinu á HM í sumar.

Oxlade-Chamberlain fór meiddur af velli eftir 18 mínútur í 5-2 sigri Liverpool á Roma í gær.

Ekki er ljóst hvenær hinn 24 ára gamli Oxlade-Chamberlain getur snúið aftur en læknalið Liverpool hefur hins vegar útilokað þátttöku hans út tímabilið sem og á HM í Rússlandi.

Oxlade-Chamberlain kom til Liverpool frá Arsenal síðastliðið sumar og hefur verið vaxandi undanfarna mánuði.
Athugasemdir
banner
banner