Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 25. apríl 2018 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo sendi Rashford gjöf - „Haltu áfram að standa þig vel"
Rashford er efnilegur.
Rashford er efnilegur.
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo fylgist enn vel með sínu gamla félagi, Manchester United, og er þar greinilega hrifinn af Marcus Rashford.

Rashford er tvítugur. Hann þreytti frumraun sína með Man Utd í Evrópudeildarleik gegn Midtjylland árið 2016 og hefur verið hluti af leikmannahópi aðalliðsins síðan þá.

Rashford hefur skorað sex mörk í ensku úrvalsdeildinni í vetur, þar á meðal tvö gegn Liverpool. Ronaldo, sem er goðsögn hjá United, er ánægður með strákinn og hefur hvatt hann til þess að halda áfram að standa sig með skemmtilegri gjöf.

„Til Marcus, haltu áfram að standa þig vel," skrifaði Ronaldo á áritaða treyju sem hann sendi Rashford.

Rashford var ánægður með gjöfina en hann hefur áður talað um það hvað hann ber mikla virðingu fyrir Ronaldo.

„Ég horfði á alla leikina með honum þegar ég var yngri," sagði Rashford við Telegraph í fyrra.



Athugasemdir
banner
banner
banner