Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 25. apríl 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Sanchez: Allt öðruvísi en hjá Arsenal
Mynd: Getty Images
Alexis Sanchez segist ennþá vera að aðlagast lífinu hjá Manchester United. Hann segir félagið vera allt öðruvísi en Arsenal.

Sanchez hefur skorað þrjú mörk í fjórtán leikjum síðan hann kom til United frá Arsenal í janúar.

„Þetta er allt öðruvísi hér. United er félag með meiri sögu og við viljum vinna titla á næsta ári," sagði Sanchez í viðtali við MUTV.

„Við þurfum að halda áfram að bæta okkur. United er stórt félag sem ég er ennþá að aðlagast og ég hlakka til að gefa allt sem ég á núna á næsta tímabili og reyna að vinna allt sem hægt er að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner