Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mið 25. apríl 2018 22:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zidane segir Asensio hafa gert gæfumuninn
,,Getur ekki spilað í Meistaradeildinni án þess að lenda í einhverjum vandræðum
Zinedine Zidane.
Zinedine Zidane.
Mynd: Getty Images
Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, hrósaði hinum 22 ára gamla Marco Asensio í hástert eftir innkomu hans í leikinn gegn Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld.

Asensio gerði sigurmarkið í 2-1 sigri Real Madrid eftir að hafa verið skipt inn á í hálfleik.

„Við vorum í vandræðum framan af og undir lok leiksins en náðum í mikilvæg úrslit," segir Zidane. „Þetta var mjög góður sigur, þú getur ekki spilað í Meistaradeildinni án þess að lenda í einhverjum vandræðum."

„Það var synd að missa Isco og Dani (Carvajal) að velli en Asensio kom inn á og gerðu gæfumuninn."

Isco og Carvajal fóru báðir meiddir af velli. Zidane gerir sér vonir um það að meiðsli þeirra séu ekki alvarleg.

Seinni leikur Real og Bayern er næsta þriðjudagskvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner