Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 06:00
Brynjar Ingi Erluson
1.deild kvenna: Fylkir með stórsigur - Haukar unnu Fram
Kvenaboltinn
Anna Björg Björnsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki
Anna Björg Björnsdóttir skoraði þrennu fyrir Fylki
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikir fóru fram í fyrstu deild kvenna í gær, en þrír leikir voru þá leiknir í A-riðli þar sem ÍA sigraði Tindastól meðal annars.

Haukar unnu 2-1 sigur á Fram er liðin mættust á Ásvöllum. Hildigunnur Ólafsdóttir kom Haukum yfir áður en Dagmar Ýr Arnarsdóttir jafnaði metin fimm mínútum síðar. Sigurmark heimaliðsins kom undir lok leiks, en markið gerði Tinna Líf Jörgensdóttir.

ÍA vann þá 2-0 sigur á Tindastól á meðan Fylkir vann sannfærandi, 5-1, sigur á Álftnesingum. Höttur sigraði þá Fjarðabyggð með þremur mörkum gegn engu.

Úrslit og markaskorarar:

Haukar 2-1 Fram
1-0 Hildigunnur Ólafsdóttir ('5 )
1-1 Dagmar Ýr Arnarsdóttir ('10 )
2-1 Tinna Líf Jörgensen ('89 )

ÍA 2-0 Tindastóll
1-0 Emilía Halldórsdóttir ('35 )
2-0 Maren Leósdóttir ('77 )

Fylkir 5-1 Álftanes
1-0 Ruth Þórðar Þórðardóttir ('3 )
2-0 Anna Björg Björnsdóttir ('35 )
3-0 Anna Björg Björnsdóttir ('45 )
3-1 Erna Birgisdóttir ('50 )
4-1 Anna Björg Björnsdóttir ('55 )
5-1 Hulda Hrund Arnarsdóttir ('90 )

Fjarðabyggð 0-3 Höttur
0-1 Fanney Þórunn Kristinsdóttir (´14 )
0-2 Fanney Þórunn Kristinsdóttir (´16 )
0-3 Fanney Þórunn Kristinsdóttir ('90 )
Slapp
banner
banner