Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 14:50
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Úrslit.net 
2. deild: Kristján Steinn skoraði þrennu í Boganum
Kristján Steinn skoraði þrennu í dag
Kristján Steinn skoraði þrennu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Dalvík/Reynir 4 - 0 Sindri
1-0 Kristján Steinn Magnússon ('8, víti)
2-0 Kristján Steinn Magnússon ('40)
3-0 Kristján Steinn Magnússon ('60)
4-0 Sigmar Bjarni Sigurðsson ('83)

Dalvík/Reynir mætti Sindra í Boganum á Akureyri í fyrsta leik dagsins í 2. deild karla.

Dalvík/Reynir var með sex stig fyrir leikinn og Sindri fjögur eftir tvær umferðir.

Kristján Steinn Magnússon kom Dalvík/Reyni yfir snemma í fyrri hálfleik með marki úr vítaspyrnu og bætti hann öðru marki við rétt fyrir hálfleik.

Kristján fullkomnaði þrennuna sína á 60. mínútu og innsiglaði Sigmar Bjarni Sigurðsson öruggan 4-0 sigur á 83. mínútu leiksins.
Slapp
banner