Höttur 0 - 0 Njarðvík
Markalaust var í leik Hattar gegn Njarðvík í 2. deildinni í dag og er þetta fyrsta stig beggja liða á tímabilinu eftir þrjár umferðir.
Liðin eru nú stigi ofar en stigalaust botnlið Reynis frá Sandgerði og tveimur stigum neðar en Hamar og Ægir sem eru með þrjú stig.
HK, Grótta og Sindri eru þá enn ofar með fjögur stig eftir þrjá leiki, en öll þessi lið eru búin að gera jafntefli við Hamar.



