Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Daily Mail 
Aguero framlengir til 2017
Sergio Aguero er búinn að framlengja samning sinn við Manchester City um eitt ár og skrifaði undir samning á dögunum sem bindur hann til 2017.

Aguero er talinn einn besti sóknarmaður í heimi og hefur Real Madrid gífurlegan áhuga á sóknarmanninum, svo hann og Man City ákvaðu í sameiningu að senda út skýr skilaboð um að hann væri ekki á förum.

,,Ég er mjög ánægður hjá City og mér líður eins og ég sé metinn að verðleikum mínum," sagði Aguero nýlega.

,,Það eru varla tvö ár síðan ég kom hingað og stundum líður mér eins og ég hafi verið hér allt mitt líf.

,,Ég er í frábæru sambandi við stuðningsmennina og það minnir mig alltaf á titilinn sem við unnum og markið örlagaríka gegn QPR. Ég get aldrei gleymt þeirri stundu.

,,Núna hlakka ég til næsta tímabils þar sem við munum leggja okkur fram við að endurheimta titilinn."

Slapp
banner
banner