Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 21:07
Ívan Guðjón Baldursson
Arjen Robben: Ég trúi þessu ekki!
Arjen Robben er í sjöunda himni eftir meistaradeildarsigur Bayern Munchen. Liðið lagði Borussia Dortmund í úrslitaleiknum í kvöld og hefur það farið framhjá fáum að Robben var hetja Bayern þar sem hann skoraði sigurmarkið á 89. mínútu.

Robben var mjög ánægður með sigurinn en var yfirvegaður og fáorður í sjónvarpsviðtali eftir leikinn.

,,Þetta var jafn leikur, við fengum færi og þeir fengu færi," sagði Robben við fréttamann UEFA eftir leikinn.

,,Þetta er ekki alveg sokkið inn en það mun gera það. Það er mikið af tilfinningum. Ég trúi þessu ekki!"
Slapp
banner
banner
banner