Heimild: Sky Sports
Joey Barton hefur oft látið það í ljós að hann vilji vera áfram leikmaður Marseille í Frakklandi en ekki snúa aftur til QPR í sumar.
Barton er samningsbundinn QPR en er hjá Marseille á lánssamning út tímabilið. Marseille er í öðru sæti frönsku deildarinnar og kemst hvorki upp um sæti né niður þar sem PSG trónir á toppnum með tíu stiga forystu.
Barton er samningsbundinn QPR en er hjá Marseille á lánssamning út tímabilið. Marseille er í öðru sæti frönsku deildarinnar og kemst hvorki upp um sæti né niður þar sem PSG trónir á toppnum með tíu stiga forystu.
Barton, sem er 30 ára enskur miðjumaður, er að reyna að fá stjórn QPR til að sleppa sér, en félagið vill nýta sér þjónustu Barton til að komast upp úr ensku Championship deildinni á næsta tímabili.
Barton er búinn að spila 32 leiki fyrir Marseille á tímabilinu og hefur staðið sig vel, en ekki nógu vel að sínu eigin mati og segir hann að hinn eini sanni Barton eigi enn eftir að koma út úr skelinni sinni.
,,Í fyrsta skipti á ævi minni er ég virkilega ánægður, mjög sáttur," sagði Barton samkvæmt opinberri vefsíðu frönsku efstu deildarinnar
,,Stuðningsmennirnir hafa tekið vel á móti mér og hleypt mér í hjörtu sín og það ber mikla þýðingu fyrir mig.
,,Mér líður eins og vinnu minni hér sé ekki lokið. Frakkar og stuðningsmenn hafa ekki ennþá séð hinn eina sanna Barton, ég býst við meiru af sjálfum mér.
,,Ég vil gera miklu meira fyrir félagið. Þegar ég sá París fagna titlinum var ég öfundsjúkur. Ég vil að Marseille vinni titilinn. Það er hægt á næsta tímabili."




