Gary Bowyer verður áfram knattspyrnustjóri Blackburn Rovers í ensku fyrstu deildinni, en hann tók tímabundið við liðinu í mars.
Bowyer, sem er 41 árs, hefur unnið síðustu níu ár hjá Blackburn, þar sem hann hefur þjálfað bæði unglingalið og varalið félagsins.
Hann hefur tvisvar á þessari leiktíð tekið tímabundið við liðinu, en það síðara eftir að Henning Berg var rekinn frá félaginu.
Hann tók við út tímabilið í síðustu níu leikjum þess og stóð sig vel að mati stjórnarformanna félagsins. Hann hefur því fengið tólf mánaða samning hjá félaginu til þess að sýna að hann hafi tökin á að þjálfa aðallið.



