Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 25. maí 2013 13:45
Ívan Guðjón Baldursson
Cruyff: Hegðun Mourinho varð Real að falli
Johan Cruyff skýtur fast á Jose Mourinho, fráfarandi þjálfara Real Madrid, og segir hann ástæðuna fyrir slæmt gengi félagsins á tímabilinu.

Real Madrid endaði í öðru sæti í deildinni, öðru sæti í bikarnum og datt út í undanúrslitum meistaradeildarinnar.

Johan Cruyff var leikmaður Barcelona í fimm ár og þjálfari félagsins í átta ár, en síðast þjálfaði hann Katalóníu frá 2009 til 2013.

,,Hegðun hans hefur haft áhrif á alla. Madrid er ekki lélegt lið, það er mjög gott lið, og ástæðan fyrir því að félagið áorkaði engu á þessu tímabili er hegðun hans," sagði Cruyff við fréttamenn áður en hann bætti því við að það sé ekki ráðlegt að fá Neymar til Barcelona.

,,Tvö stór egó á sama bát? Við verðum að læra af fortíðinni."
Slapp
banner
banner