Demba Ba, leikmaður Chelsea á Englandi, segist vera spenntur fyrir komu Jose Mourinho til liðsins.
Real Madrid á Spáni tilkynnti á dögunum að Jose Mourinho myndi láta af störfum sem þjálfari liðsins eftir tímabilið.
Chelsea hefur lengi verið á höttunum á eftir Mourinho, en Rafael Benitez stýrði liðinu út þessa leiktíð eftir að Roberto Di Matteo var látinn taka poka sinn.
Mourinho hefur verið orðaður við Chelsea í marga mánuði og virðist vera nokkuð ljóst að hann taki við Lundúnarliðinu á næstu dögum.
,,Þið sjáið hvað hann hefur unnið og hvað hann hefur gefið þeim leikmönnum sem hann hefur unnið með. Svo er hann auðvitað sá besti," sagði Ba.



