Massimo Moratti, forseti Inter, útskýrði þá ákvörðun sína að fá Walter Mazzarri til starfa. Andrea Stramaccioni var látinn taka pokann sinn svo þessi fyrrum þjálfari Napoli gæti skrifað undir tveggja ára samning.
„Við þurftum að fá inn þjálfara með reynslu. Það er aldrei góð tilfinning að reka einhvern en ég taldi að við þyrftum að gera breytingar eftir erfitt tímabil og fá inn reynslumikinn mann eins og Mazzarri," sagði Moratti en Inter endaði í níunda sæti ítölsku A-deildarinnar.
„Þrátt fyrir þessa ákvörðun teljum við að Stramaccioni sé hæfileikaríkur þjálfari sem getur náð langt. Ég er viss um að hann verði einn besti þjálfari Ítalíu. Hann var oft á tíðum óheppinn á þessu tímabilinu."
Mazzarri lét af störfum hjá Napoli í síðustu viku eftir fjögur ár hjá félaginu.




