Robbie Rogers er nafn sem sennilega fáir þekkja, en hann er orðinn nafn í bandarísku MLS-deildinni. Rogers er fyrsti samkynhneigði leikmaður deildarinnar.
Rogers hefur að undanförnu verið að æfa með Los Angeles Galaxy í MLS-deildinni, en hann var þó áður á mála hjá Columbus Crew.
Hann kom út úr skápnum fyrir þremur mánuðum síðan og hefur vakið mikla athygli, en nú er ljóst að hann er fyrsti leikmaður MLS-deildarinnar sem kemur út úr skápnum.
Ekki bara það, heldur er hann eini bandaríski atvinnumaðurinn sem spilar á hæsta stigi í Bandaríkunum í dag sem er opinberlega samkynhneigður.
Jason Collins, leikmaður í NBA-deildinni í Bandaríkjunum kom þá út úr skápnum á dögunum, en hann er hinsvegar ekki samningsbundinn liði í augnablikinu. Hann hefur aftur á móti ekki spilað undanfarið svo Rogers heldur heiðri sem eini spilandi samkynhneigði atvinnumaðurinn í augnablikinu.
Rogers hefur þegar spilað 18 leiki fyrir bandaríska landsliðið og stefnir hann á að spila með liðinu á HM 2014 í Brasilíu.


