Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 05:55
Elvar Geir Magnússon
Meistaradeildin: Úrslitaleikurinn í opinni dagskrá í kvöld
Í kvöld klukkan 18:45 verður úrslitaleikur Meistaradeildarinnar á dagskrá þegar þýsku risaveldin Borussia Dortmund og FC Bayern eigast við á Wembley í London. Leikurinn er sýndur í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport.

Bayern vann þýsku deildina með yfirburðum, hlaut 91 stig og Dortmund lenti í öðru sæti með 66 stig.

Þetta er í fyrsta sinn sem úrslitaleikurinn er algjörlega þýskur en þegar þessi tvö lið áttust við í deildinni í vetur enduðu báðir leikir með 1-1 jafntefli. Liðin mættust einnig í bikarnum og þar fór Bayern með sigur 1-0.

Hitað verður upp fyrir leikinn í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu í dag klukkan 12.

Úrslitaleikur Meistaradeildarinnar:
18:45 Dortmund - FC Bayern

Sjá einnig:
Upphitunarfrétt fyrir leikinn sem birtist í gær
Slapp
banner