,,Það er mjög gaman að vinna 6-1 og það er gott fyrir sumarið að byrja vel," sagði Stefán Þór Pálsson við Fótbolta.net eftir öruggan sigur Grindavíkur á BÍ/Bolungarvík í dag.
Stefán Þór skoraði tvívegis í dag en fyrra markið kom með skoti af löngu færi sem Alejandro Munoz náði ekki að verja.
,,Það var mikið flökt á boltanum og þetta var gott skot. Ég sá það allavega svoleiðis," sagði Stefán.
Grindvíkingar fengu vítaspyrnu undir lokin sem Magnús Björgvinsson skoraði úr en Stefán hefði þar getað fengið tækifæri til að ná þrennunni. ,,Ég spurði Magga að því en hann þvertók fyrir það og vildi taka þetta sjálfur."
Grindvíkingar eru eftir sigurinn í dag með sex stig eftir þrjár umferðir í fyrstu deildinni og reikna má með liðinu í toppbaráttu í sumar.
,,Það er ekki sett mikil pressa á að fara upp en það er alltaf gaman að vera í toppbaráttunni," sagði Stefán sem er í láni hjá Grindavík frá Breiðabliki.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.























