Andri Guðlaugsson skrifar úr Fellabæ
Höttur 0 - 0 Njraðvík
Höttur bauð til leiks í dúndrandi sól og þéttum vind eins og venjan er á Fellavelli. Nýr leikmaður hjá Hetti, Bragi Þór Kristinsson, byrjaði inná og var það eina eina fréttnæma í liðsvali heimamanna. Gummi Steinars var í leikstjórnandastöðu gesta sem hófu leik á móti vind.
Stutt var liðið af leik þegar heimamenn fengu hornspyrnu sem Brynjar Árnason var nálægt að skora úr. Höttur reyndi að halda bolta og spila sín à milli meðan Njarðvíkingar notuðust meira við þann margfræga stíl kick and run gegn vindi.
Lítið var um færi og liðin börðust við að halda boltanum hvort með sínum stíl en ákveðið jafnræði var samt sem àður. Á 30. mínútu þurfti Jonathan Taylor miðjumaður Hattar að fara af velli og inn kom Fellbæingurinn Óttar Guðlaugsson.
Það var fyrst á 32. mínútu sem Scott Goodwin í marki Hattar þurfti að taka à stóra sínum eftir fínt skot Njarðvíkinga. Gestirnir áttu svo næstu mínútur leiks og klaufar að skora ekki eftir léleglega markvörslu hjá Scott. Jafnræði með liðum í fyrri hálfleik.
Áhorfendur streymdu í hálfleik og keyptu sér Gunnu kleinur í strórum stíl, allir hvattir til að mæta á Hattarleiki þó það væri ekki nema fyrir kleinurnar.
Það var ekki mikið búið af seinni hálfleik þegar Birkir Páls missti boltann frá sér þegar Höttur byrjaði stutt uppspil á móti vindi. Daniel Gylfason var þó of lengi að koma fyrir sig bolta til að láta vaða á marki og refsa heimamönnum og boltinn endaði talsvert fyrir aftan markið. Njarðvíkingar fengu stuttu seinna aukaspyrnu sem margir í brekkunni voru logandi hræddir við. Guðmundur Steinars hefur þó sennilega tekið betri spyrnur með vind því Scott átti auðvelt með að taka boltann í fangið.
Við þetta hresstust heimamenn og fóru að spila boltanum á milli sín og þokast nær marki Njarðvíkur sem skilaði sér að lokum þegar Garðar Már Grétarsson fekk fínt færi en auðveldlega varið af Vigni í markinu.
Boltinn fór að ganga hraðar milli marka og Njarðvíkingar reyndu nokkrum sinnum að stinga boltum inná bakvið Krisófer bakvörð Hattar en vindurinn bar boltan alltaf útaf.
Á 70. mínútu fékk títtnefndur Guðmundur í liði Njarðvíkur færi en átti lélegt skot sem og Jónas í liði Hattar tveimur mínútum síðar. Þar rétt á eftir komst Brynjar Árna í dauðafæri en hitti boltann illa og á endanum rúllaði boltinn hálfpartinn í fangið á Vigni í markinu.
Skotæfingar er eitthvað sem vantar miðað við þennan leik.
Njarvíkingar fengu svo tvisvar með stuttu millibili aukaspyrnu vinstra megin á vellinum og Guðmundur spyrnti fyrir og Rafn Markús fyrirliði Njarðíkur var einn á auðum sjó fyrir framan Scott, en skallinn var kærulaus og slakur og Scott ekki í neinum vandræðum.
Á 85. mínútu tapaði Jónas Ástþór, annars besti maður Hattar, boltanum stutt framan við eigin vítateig og Lukasz Malesa átti skot rétt framhjá marki Hattar.
Nokkur hiti hljóp í menn í háum boltum og var talsvert um olbogaskot og hrindingar.
Síðustu fimm mínútur leiks áttu þó Hattarmenn og reyndi Steinar Aron, nýkominn inná sem varamaður fyrir Braga Þór sem stóð sig sæmilega, að dæla fyrir boltum inn á teiginn en ekki var næg grimmd í framherjum Hattar til að ná til þeirra. Þó attu heimamenn nokkur skot sem þó enduðu ávallt í varnarmönnum Njarðvíkur.
Lokastaða 0-0 og sennilega bæði lið sem mega vera sátt við það eins og Boggi sagði áður en hann steig á hjólið sitt.


