Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 25. maí 2015 07:00
Elvar Geir Magnússon
Advocaat: Gef ykkur svör í næstu viku
Advocaat þarf að taka stóra ákvörðun.
Advocaat þarf að taka stóra ákvörðun.
Mynd: Getty Images
Sunderland tapaði 3-1 fyrir Chelsea í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í gær. Óvíst er hvort Dick Advocaat haldi áfram sem stjóri liðsins en félagið vill halda honum.

„Ég mun gefa ykkur svör um mína framtíð í næstu viku. Leikmenn hafa staðið sig ótrúlega vel og ég er mjög stoltur af þeim að hafa náð í þessi 12 stig," segir Advocaat.

Margir héldu að Sunderland væri á leið að falla úr deildinni en liðið endaði í 16. sæti.

„Aðstoðarmaður minn sagði að við höfðum gert það ómögulega mögulegt. Það er stór ákvörðun sem ég þarf að taka í vikunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner