Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
   mán 25. maí 2015 22:01
Ívan Guðjón Baldursson
Albert Brynjar: Það vantaði bara að setja tuðruna í netið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Albert Brynjar Ingason var léttur eftir góðan sigur á Keflavík í Pepsi-deildinni þar sem Fylkismenn skoruðu þrjú mörk á útivelli og unnu öruggan 3-1 sigur.

Albert skoraði annað mark leiksins úr vítaspyrnu og sagði að liðið hafi aldrei misst trúna á því að sigra þennan leik þrátt fyrir að það hafi verið erfitt að koma boltanum í netið fyrstu 50 mínútur leiksins.

Lestu um leikinn: Keflavík 1 -  3 Fylkir

„Við höfðum trú á þessu þó þetta hafi ekki dottið inn með okkur í fyrri hálfleik. Mér fannst við stýra leiknum algjörlega í fyrri hálfleik, það vantaði bara að setja tuðruna í netið," sagði Albert eftir leikinn.

„Við töluðum um það í hálfleik að ef við myndum halda svona áfram þá myndum við sigla þessum þremur stigum heim. Þetta var mjög svipaður leikur og gegn ÍBV þar sem við þurftum að bíða eftir fyrsta markinu. Ég er mjög ánægður með okkur að gefa ekkert eftir."

Ásgeir Börkur Ásgeirsson miðjumaður Fylkis fór meiddur af velli í fyrri hálfleik en Albert veit ekki hvort það sé alvarlegt og býst við að hann verði tilbúinn í næsta leik.

„Ég veit ekki alveg stöðuna á því. Ég held hann sé eitthvað stífur í náranum en við erum með svo frábæran sjúkraþjálfara að hann verður tilbúinn í næsta leik."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner