Ásmundur Arnarsson þjálfari Fylkis var ánægður með 3-1 sigur sinna manna gegn Keflavík í kvöld, í Keflavík.
Eftir markalausan fyrri hálfleik var boðið upp á markasúpu í seinni hálfleik, en Fylkismenn sköpuðu sér fullt af færum allan leikinn.
Eftir markalausan fyrri hálfleik var boðið upp á markasúpu í seinni hálfleik, en Fylkismenn sköpuðu sér fullt af færum allan leikinn.
Lestu um leikinn: Keflavík 1 - 3 Fylkir
„Auðvitað hafði maður pínu áhyggjur í hálfleik. Við vorum mun sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og fengum mikið af færum. Það er oft svolítið trikký að koma út í seinni hálfleik og halda hausnum köldum og rétt skrúfðan á."
„Við spiluðum mjög vel á móti vindinum, sköpuðum okkur færi og skoruðum mörkin og kláruðum leikinn nokkuð solid," sagði Ásmundur þjálfari Fylkis.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir