Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2015 09:00
Fótbolti.net
Draumaliðsdeild Brammer: Markaðurinn lokar klukkan 16:00
Mynd: Fótbolti.net
KR og Fylkir verða í eldlínunni í dag.  KR mætir ÍBV en Fylkir heimsækir Keflavík.
KR og Fylkir verða í eldlínunni í dag. KR mætir ÍBV en Fylkir heimsækir Keflavík.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Búið er að opna markaðinn í Draumaliðsdeild Brammer og Fótbolta.net á nýjan leik fyrir 5. umferðina sem hefst í dag.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Hægt er að kaupa og selja leikmenn ótakmarkað og gera breytingar á liðinu áður en leikmannaglugginn lokar klukkan 16:00 í dag, klukkutíma fyrir leik KR og ÍBV.

Að sjálfsögðu er líka hægt að skrá ný lið til leiks!

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Varstu með í fyrra?
Notendur sem voru skráðir í fyrra eru ennþá skráðir í kerfið. Ef þú manst ekki lykilorðið getur þú fengið sendan tölvupóst með leiðbeiningum um hvernig þeir setja nýtt lykilorð.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Draumaliðsdeild Brammer er opinber samstarfsaðili Íslensks Toppfótbolta og er starfræktur með leyfi hans.

Brammer, styrktaraðili leiksins í ár, er helsti dreifingaraðili Evrópu innan viðhalds-, viðgerða- og varahluta, og tengdrar þjónustu. Fyrirtækið býður afar breitt vöruúrval, þar á meðal: Legur, drifbúnað, loft- og vökvakerfi, verkfæri og öryggis- og heilsuvörur.



Athugasemdir
banner