Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mán 25. maí 2015 13:00
Magnús Már Einarsson
Bilic hættur með Besiktas - Tekur hann við West Ham?
Mynd: Getty Images
Slaven Bilic ætlar að hætta sem þjálfari tyrkneska félagsins Besiktas eftir tímabilið.

Hinn 46 ára gamli Bilic hefur stýrt Besiktas síðan árið 2013 en hann var áður landsliðsþjálfari Króatíu.

„Ég verð ekki þjálfari Besiktas á næsta tímabili. Ég er stoltur af því sem ég hef gert hér," sagði Bilic.

Bilic hefur verið sterklega orðaður við stjórastöðuna hjá West Ham en hann er fyrrum leikmaður liðsins.

Sam Allardyce er á förum frá West Ham en það var staðfest í gær.
Athugasemdir
banner