Real Madrid mun líklega tilkynna síðdegis í dag hver framtíð Carlo Ancleotti verður.
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 17:30 í dag.
Florentino Perez, forseti Real Madrid, hefur boðað til fréttamannafundar klukkan 17:30 í dag.
Ancelotti var sigursæll á sínu fyrsta tímabili hjá Real Madrid þar sem liðið vann bæði Meistaradeildina og spænska bikarinn.
Á nýliðnu tímabili gekk ekki eins vel en Real Madrid endaði tímabilið án titils og framtíð Ancelotti er í mikilli óvissu.
Rafael Benítez hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid en Ancelotti virðist þó hafa stuðning frá flestum leikmönnum liðsins.
Athugasemdir