Eyjamenn voru grátlega nálægt því að krækja sér í stig á KR-vellinum í dag. 1-0 tap hinsvegar staðreynd og Eyjamenn á botni deildarinnar með 1 stig að loknum fimm leikjum.
„Þetta var engu að síðu hetjubarátta hjá strákunum og þeir eiga mikið hrós skilið fyrir það," sagði Jóhannes Harðarson þjálfari ÍBV.
„Þetta var engu að síðu hetjubarátta hjá strákunum og þeir eiga mikið hrós skilið fyrir það," sagði Jóhannes Harðarson þjálfari ÍBV.
Lestu um leikinn: KR 1 - 0 ÍBV
„Mér fannst við vera líklegir og við vorum að skapa hættu á breikinu. Við vorum alltaf inn í þessu fannst mér," sagði Jóhannes sem var fúll með marki sem Óskar Örn skoraði eftir mistök Guðjóns Orra markvarðar ÍBV. Hann vildi þó ekki kenna Guðjóni um allt sem fór úrskeiðis í markinu.
„Það er vissulega slæmt. Við erum svekktir hvernig við fáum þetta mark á okkur. Guðjón gerir vel í fullt af öðrum atvikum. Ég á eftir að sjá þetta betur, það er ekki bara Gaui. Það eru aðrir leikmenn sem eiga að sjá til þess að hann geti farið út í boltann. Þetta er samvinna milli varnar og markmanns. Gaui líður illa, eins og þetta sé allt honum að kenna," sagði Jóhannes sem var einnig spurður út í það að hann er með sex erlenda leikmenn á bekknum í dag og hvort hann hafi verið að sækja sér B-liðs leikmenn.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir