Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. maí 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Kolo Toure að gera nýjan samning við Liverpool
Léttur í lund.
Léttur í lund.
Mynd: Getty Images
Kolo Toure, varnarmaður Liverpool, er nálægt því að ganga frá nýjum eins árs samning við Liverpool.

Hinn 34 ára gamli Toure verður samningslaus í sumar en hann vill vera áfram hjá Liverpool.

„Ég held að þetta skýrist fljótlega. Við erum í viðræðum. Það á eftir að ganga frá nokkrum hlutum og við sjáum til. Liverpool er frábært félag fyrir mig," sagði Toure.

„Ég elska ensku úrvalsdeildina, ég hef spilað allan minn feril hér og ef ég get klárað ferilinn hér þá væri það frábært."

„Börnin mín eru í skóla hér og þau eru hálf ensk. Ég spila með Liverpool í aungablikinu og ef ég get gert það áfram verð ég mjög ánægður."

Athugasemdir
banner
banner
banner