Argentínski varnarmaðurinn Cristian Gomez lét lífið í leik í argentínsku B-deildinni í gær.
Hinn 27 ára gamli Gomez fékk hjartaáfall eftir hálftíma leik hjá Atletico Parana og Boca Unidos.
Hinn 27 ára gamli Gomez fékk hjartaáfall eftir hálftíma leik hjá Atletico Parana og Boca Unidos.
„Við reyndum að endurlífga hann en hann lést á leiðinni á spítala," sagði Miguel Darre læknir Boca Unidos.
Byrjað var að spila aftur í Argentínu um helgian eftir hlé sem var gert á keppni þar í landi eftir að Emanuel Ortega lést eftir slys í leik með San Martin de Burzaco.
Sjá einnig:
Hörmulegt dauðaslys í Argentínu - Öllum leikjum frestað
Athugasemdir